Fréttir og viðburðir
11.2.2008
Fullt út úr dyrum á kynningarfundi vegna ferðar á Hvannadalshnúk
Ríflega 300 manns mættu á kynningarfund vegna ferðar 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna á Hvannadalshnúk sem haldinn var í verslun 66°Norður í Faxafeni. Mikill áhugi er fyrir ferðinni og æfingaprógraminu sem búið er að setja upp til þess að undirbúa fólk fyrir ferðina. Nú þegar hafa yfir 160 manns skráð sig en farið verður á toppinn tvo daga, annars vegar laugardaginn 31. maí og hins vegar 7. júní.
Þeim sem ekki mættu á fundinn en hafa áhuga á að fara með á Hnúkinn er bent á að hafa samband við Íslenska Fjallaleiðsögumenn (587-9999) eða skoða heimasíðu 66°Norður (www.66north.is) en þar er hægt að finna nánari upplýsingar um ferðina.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.



