Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

13.2.2008

Æfingar hafnar fyrir ferðina á Hvannadalshnúk

Æfingar hafnar fyrir ferðina á HvannadalshnúkFrábærar undirtektir hafa verið við hópferðinni á Hvannadalshnúk sem 66°Norður og Íslenskir fjallaleiðsögumenn standa fyrir. Nú þegar hafa 180 manns skráð sig í ferðina á Hnúkinn og sífellt bæstist í þann góða hóp. Æfingar fyrir ferðina eru hafnar og var fyrsta æfingin síðastliðinn laugardag þar sem um 70 manns mættu og gengu saman um Elliðaárdalinn undir dyggri leiðsögn Íslenskra fjallaleiðsögumanna.

Næsta æfing verður í kvöld miðvikudaginn 13. febrúar og eru allir sem hafa áhuga, blaðamenn og aðrir, hvattir til þess að mæta. Hist verður við Árbæjarlaugina kl. 17:30 og gengið um Elliðaárdalinn. Þeir sem hafa áhuga á að fara með á Hnúkinn en hafa ekki skráð sig er bent á að hafa samband við Íslenska Fjallaleiðsögumenn (587-9999) eða skoða heimasíðu 66°Norður (www.66north.is) en þar er hægt að finna nánari upplýsingar um ferðina.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn

Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.

Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.

Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.


Veldu land : IS