Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

23.2.2008

Hvannadalshnúkur 2008 - klæddu þig vel

Hvannadalshnúkur 2008 - klæddu þig vel66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn verða með kynningarfund um útbúnað fyrir háfjallaferðir í húsakynnum 66°Norður, Faxafeni 12, miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20.00.

Fjallað verður um fatnað og næringu fyrir fjallaferðir og býðst gestum að versla og fá ráðleggingar frá fagmönnum að kynningu lokinni. Hnúksfarar fá þátttökukort sem gefur 25% afslátt af útivistarfatnaði frá 66°Norður* og 15% afslátt af skóm og aukabúnaði. Hnúksfarar sem og áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér æfingaáætlunina.

Rúmlega 200 manns hafa skráð sig í þessa ævintýraför og við bendum á að enn er hægt að skrá sig og taka þátt.

*vörur framleiddar af 66°Norður

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn

Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.

Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.

Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.


Veldu land : IS