Fréttir og viðburðir
3.3.2008
Hálfur sigur unninn!
Rúmlega 130 manns úr dagskránni Toppaðu með 66°Norður klifu Heiðarhornið
Laugardaginn 1. mars gékk ríflega 130 manna hópur úr dagskránni „Toppaðu með 66°Norður“ á Heiðarhornið, hæsta tind Vesturlands (1.053 m). Gangan var liður í undirbúningi hópsins fyrir göngu á Hvannadalsknúk í byrjun sumars en hópurinn hittist alltaf einu sinni í viku og æfir fyrir ferðina. Hvannadalshnúkur er 2.110 m hár og því má segja að hálfur sigur sé unninn fyrir hópinn á leið sinni á toppinn. Gangan var skipulögð af Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og allir sem tóku þátt í göngunni voru hæstánægðir með ferðina enda ekki hægt að fá betra veður og útsýnið af toppnum var frábært. Fyrst var gengið á Skarðshyrnu og þaðan yfir á Heiðarhornið og tók gangan alls um 7 tíma.
Nú þegar hafa um 250 manns skráð sig í ferðina á Hvannadalshnúk og enn er laust pláss svo þeim sem hafa áhuga á að slást í hópinn er bent á að hafa samband við Íslenska Fjallaleiðsögumenn (587-9999).
Nánari upplýsngar veitir Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður: helga@66north.is eða 535-6627.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
