Fréttir og viðburðir
18.3.2008
66°Norður klífur til að auka meðvitund um bráðnun jökla
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa tekið höndum saman við að bjóða hópþjálfun fyrir göngu á Hvannadalshnjúk. Auk þess að bjóða skemmtilegt ævintýri og áskorun er markmið hópgöngunnar að auka meðvitund um þann aðsteðjandi vanda sem er bráðnun jökla.
Framúrskarandi staða 66°Norður er byggð á arfleifð frá íslenskri náttúru og þjóðinni sjálfri. Vegna þessa leitast fyrirtækið við að auka vitund fólks um ört bráðnandi jökla um allan heim. Hér er ekki á ferðinni pólitísk yfirlýsing, heldur frekar viðurkenning á mikilli ógn gegn stöðugleika vistkerfisins.
Verkefnið hófst snemma í febrúar undir nafninu “Toppaðu með 66°Norður” á því að öllum íslendingum og annarra þjóða fólki var boðin þátttaka. Nálega 300 manns mættu á fyrsta fundinn. Þjálfunin innifelur líkamlega þjálfun og kynningarfundi með fyrirlestrum um göngu á jökla. Markmiðið er að allir þátttakendur gangi á Hvannadalshnúk (2110 m) undir stjórn Íslenskra fjallaleiðsögumanna í lok maí og í fyrstu viku júní. Hvannadalshnúkur er sem kunnugt er hæsti tindur Íslands, 2110 metrar á hæð, og stendur syðst í Vatnajökli austan Skaftafells.
Von 66°Norður er að með þessari hópgöngu muni fleiri öðlast beina þekkingu á mikilvægi jökla fyrir jafnvægi umhverfisins. Þó að bráðnun jökla sé alvörumál leggur 66°Norður einnig áherslu á gleðina sem kemur vegna áskorana og uppákoma. Fylgstu með gengi verkefnisins á http://www.66north.is/toppadu-med-66-n.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
