Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

28.3.2008

Fyrsti jökullinn af þremur!

150 manns úr dagskránni Toppaðu með 66°Norður ganga á Snæfellsjökul

Fullt út úr dyrum á kynningarfundi vegna ferðar á HvannadalshnúkÁ morgun laugardag mun 150 manna hópur úr dagskránni „Toppaðu með 66°Norður“ ganga á Snæfellsjökul (1446 m). Snæfellsjökull er fyrsti af þremur jöklum sem hópurinn mun ganga á sem liður í undirbúningi fyrir göngu á Hvannadalshnúk í byrjun sumars. „Toppaðu með 66°Norður” æfingadagskráin hefur í alla staði gengið mjög vel og er hópurinn vel stemdur fyrir gönguna á morgun. Snæfellsjökull  er 1466 m. há eldkeila sem lengi vel var talinn hæsta fjall landsins. Hæsti hluti jökulsins eru þrjár þúfur á barmi gígskálarinnar sem nefnast jökulþúfur. Síðast gaus í jöklinum fyrir um 1800 árum en jökullinn hefur minkað  mikið á undanförum árum vegna loftlagsbreytinga og er nú 11 km2 að flatarmáli.
 
Veðurspáin fyrir morgundaginn lofar góðu en spáð er björtu en dálítið köldu og hvössu veðri en hópurinn lætur það ekki á sig fá, enda búið að fá góða kynningu hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum á útbúnaði og fatnaði og veður ætti því ekki að aftra neinum að komast á toppinn.

Nánari upplýsngar veitir Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður; helga@66north.is eða 535-6627.

Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á heimasíðum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna www.mountainguide.is og 66°Norður www.66north.is

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn

Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.

Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.

Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.


Veldu land : IS