Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

7.4.2008

Jöklaferðir - fræðslufundur á miðvikudaginn kl. 20:00

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður miðla af reynslu sinni og þekkingu um jöklaferðir.

Miðvikudagskvöldið 9. apríl munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður halda fræðslufund um jöklaferðir í verslun 66°Norður Faxafeni 12. Fundurinn hefst kl.20:00 og þar munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir þann búnað sem nauðsynlegur er til þess að ferðast af öryggi um jökla landsins. Grundvallarbúnaður er, lína, ísexi og broddar og ætti enginn að leggja leið sína um jökla þar sem sprungur geta leynst án þessara hluta. Alla jafna gengur fólk í línu um jöklasvæði sem tryggir rétt viðbrögð falli einhver í sprungu. Mannbroddar eru ekki eingöngu nauðsynlegir á jöklum heldur alls staðar þar sem harðfenni og ís eru til staðar. Broddarnir tryggja festu og grip og gera fólki kleift að ganga áfram. Öxina er ágætt að styðja sig við, höggva spor og nota til þess að stöðva sig renni maður til.

Á fundinum verður einnig farið í annan búnað svo sem fatnað og mikilvægi þess að borða rétt og drekka vel fyrir, á meðan og eftir langa göngu. Fundurinn er hluti af dagskránni “Toppaðu með 66°Norður” sem Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður settu saman til þess að gera sem flestum kleift að komast á Hvannadalshnúk í byrjun sumars. Þekkingin sem fundarmenn eiga eftir að afla sér á miðvikudaginn mun svo koma sér að góðum notum næstkoamndi laugardag en þá mun hópur úr dagsrkánni Toppaðu með 66°Norður ganga á Eyjafjallajökul (1.666 m).

Nánari upplýsngar veitir Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður; helga@66north.is eða 535-6627 og Dagný Indriðadóttir hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum; dagny@mountainguide.is eða 587-9999.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn

Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.

Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.

Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.

Hvannadalshnjúkur 2008

Jón Gauti Jónsson tók myndina sem fylgir fréttatilkynningunni á Heiðarhorninu 1. mars síðastliðinn.


Veldu land : IS