Fréttir og viðburðir
24.4.2008
Fræðslufundur á Akureyri um útbúnað á fjöllum
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og 66°Norður miðla af reynslu sinni og þekkingu í fjallamennsku
Mánudaginn 28. apríl kl. 20.00 munu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn miðla af reynslu sinni og þekkingu á fatnaði og öðrum útbúnaði til fjallaferða í verslun 66°Norður, Glerárgötu 32, Akureyri. Á fundinum munu fjallaleiðsögumennirnir Leifur Örn Svavarsson, háfjallaklifrari og Jón Gauti Jónsson, fyrrverandi ritstjóri Útiveru kynna nauðsynlegan klæðnað og annan útbúnað til að sigrast á hæstu fjöllum landsins, en einnig draga úr reynslubrunni sínum fróðleiksmola um ferðatækni. Markmiðið með kynningunni er að gera áhugasömum kleift að stunda fjallgöngur og útivist á öruggan og þægilegan máta.
Þá munu þeir félagar einnig stikla á stóru í ferðaáætlun Íslenskra Fjallaleiðsögumanna hér heima og erlendis. Að því loknu munu svo félagar í Glerárdalshringnum 24x24 kynna þennan magnaðasta fjallasal landsins er umlykur Glerárdal á Akureyri, en í sumar verður Glerárdalurinn gengin í fjórða sinn. Kynningin hefst kl. 20.00 í verslun 66°Norður, Glerárgötu 32 og er allt áhugasamt fólk um útivist og klæðnað hvatt til að mæta.
Nánari upplýsngar veitir Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður helga@66north.is, s. 535-6627. Einnig má nálgast upplýsingar um fundinn á heimasíðu 66°Norður www.66north.is.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
