Fréttir og viðburðir
26.5.2008
Hátindur Íslands innan seilingar - Ganga á Hvannadalshnúk í beinni
Ríkuleg uppskera göngufólks
Frá því í febrúar á þessu ári hefur fjöldi fólks komið saman og gengið á sífellt hærri fjöll vegna fyrirhugaðrar göngu á Hvannadalshnúk (2 110 m) hinn 31. maí og 7. júní næstkomandi.
Fjallgöngurnar eru liður í verkefninu – Toppaðu með 66°Norður – en það er samstarfsverkefni 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna og miðar meðal annars að því að gera sem flestum kleift að stunda fjallgöngur og útivist í góðra vina hópi. Skemmst er frá því að segja að fjöldi fólks tók áskoruninni og hafa nú yfir 300 manns gengið á Heiðarhorn (1054 m), Snæfellsjökul (1446 m) og Eyjafjallajökul (1666 m) það sem af er ári og bætt þannig þrek sitt. Fátt ætti því að koma í veg fyrir að göngufólk fái notið til fullnustu göngunnar á Hvannadalshnúk.
Allt í beinni
Sá mikli fjöldi sem sýnt hefur Hnúknum áhuga gerir það að verkum að nauðsynlegt er að skipta hópnum niður á tvo göngudaga. Bein útsending verður frá göngunni fyrri daginn en þar gefst áhugasömum kostur á að fylgjast með færi og aðstæðum á fjallinu og framvindu göngunnar. Til að sjá beina útsendingu þarf að fara á heimasíðu 66°Norður, Íslenskra Fjallaleiðsögumanna eða Símans.
Flugvél með ljósmyndara mun einnig sveima yfir Öræfajökli á meðan á göngunni stendur ef veður leyfir og taka myndir af hópnum.
Þátttakendur eru vel stemmdir fyrir gönguna á Hnúkinn og tilhlökkun mikil, enda margir í hópnum að láta gamlan draum, um að standa á hæsta tindi Íslands, rætast.
Ölgerðin gleður hópinn
Þegar Ölgerðin frétti af þessum fræka hóp sem ætlar að ganga á Hnúkinn ákvað hún að gleðja göngumenn með Kristal sem verður vafalaust kærkominn þegar komið er niður af Hnúknum.
Nánari upplýsingar veita:
Hjördís María Ólafsdóttir: 66°Norður; hjordis@66north.is og 535-6600
Jón Gauti Jónsson: Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum; jongauti@mountainguide.is og 587-9999
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
