Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

3.6.2008

Jake Gyllenhaal í Glym jakka frá 66°Norður

Í nýjasta tölublaði US Weekly sem kom út í gær er heilsíðu mynd af Jake Gyllenhaal þar sem hann klæðist svörum Glym öndunarjakka frá 66°Norður. Jake er ekki eina stjarnan sem líkar vel við fatnað 66°Norður en eins og alþjóð veit þá eru til að mynda Quinten Tarantino og Eli Roth miklir aðdáendur 66°Norður auk þess sem Scarlet Johanssen og fleiri hafa sést klæðast fatnaði frá fyrirtækinu við ýmis tækifæri.

Þessi mynd kom forsvarsmönnum 66°Norður skemmtilega á óvart og sannar enn og aftur að hróður fyrirtækisins hefur borist víða.

Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir - Markaðssetjóri 66°Norður
Tölcupóstur: helga@66north.is
Sími: 535-6600

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS