Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

4.6.2008

Toppnum náð og draumar að rætast

130 manns náðu toppi Hvannadalshnúks á laugardag og 80 manns munu leggja á Hnúkinn næsta laugardag.

Frá því í febrúar á þessu ári hefur fjöldi fólks komið saman og gengið sífellt hærri fjöll vegna fyrirhugaðrar göngu á Hvannadalshnúk (2 110 m). Síðastliðinn laugardag var komið að stóra deginum hjá hluta hópsins en þá gengu 130 manns á Hvannadalshnúk undir dyggri stjórn Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Gangan var lokapunkturinn í verkefninu – Toppaðu með 66°Norður – en það er samstarfsverkefni 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna og miðar meðal annars að því að gera sem flestum kleift að stunda fjallgöngur og útivist í góðra vina hópi.

Gangan hófst í þoku og rigningu en göngumenn létu það ekki á sig fá enda vel búnir. Eftir að hafa gengið í þoku nánast allan tímann var toppnum náð og sólin byrjaði að gæjast í gegnum skýin. Eftir það varð veðrið alltaf betra og betra og gengið var niður í blíðskapar veðri þar sem Ísland skartaði sínu fegursta. Meðal þeirra sem gengu á Hnúkin síðastliðinn laugardag var Halldór G. Eyjólfsson framkvæmdastjóri 66°Norður og var hann hæst ánægður með ferðina, eins og göngumenn allir sem voru sammála um að ferðið og –Toppaðu með 66°Norður - dagskráin öll, hefði heppnaðst með eindæmum vel.

Næsta laugardag mun svo seinni hluti hópsins sem tók áskorun 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna ganga á Hnúkinn en þá eru um 80 manns skráðir til leiks. Þátttakendur næsta laugardag eru vel stemmdir fyrir gönguna og tilhlökkun mikil, enda margir í hópnum að láta gamlan draum, um að standa á hæsta tindi Íslands, rætast.

Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir – 66°Norður; helga@66north.is og 535-6600
Jón Gauti Jónsson – Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum; jongauti@mountainguide.is og 587-9999

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn

Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.

Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.

Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.


Veldu land : IS