Fréttir og viðburðir
26.6.2008
66°Norður eykur umsvif sín á Akureyri
Ný verslun opnar á Glerártorgi og sérhæfð vinnufataverslun á Glerárgötu
66°Norður hefur smám saman verið að auka umsvif sín á Akureyri en nú rekur fyrirtækið þar eina verslun auk þess sem sölufulltrúi fyrir Norðurland er staðsettur þar. Á morgun, 27. júní, mun fyrirtækið auka umsvif sín á Akureyri til muna en þá opnar ný og glæsileg útivistarverslun á Glerártorgi. Verslunin verður alhliða útivistarverslun þar sem hægt verður að kaupa allan nauðsynlegan útivistarbúnað, fatnað, skó og aukahluti. Í kjölfar opnunarinnar mun verslunin á Glerárgötu taka breytingum en þar mun opna stór sérhæfð vinnufataverslun auk þess sem útsölumarkaður 66°Norður mun vera staðsettur þar. Þessar breytingar eru kærkomnar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins, þar sem hingað til hefur öll starfsemi 66°Norður á Akureyri verið í sama húsnæðinu sem fyrir löngu er orðið of lítið. Í kjölfar breytinganna mun úrvalið einnig aukast svo það er óhætt að segja að margir bíði óþreygjufullir eftir þessum breytingum.
Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
