Fréttir og viðburðir
27.6.2008
Efni unnið úr Kókoshnetuskel
66°Norður er fyrsta íslenskra fyrirtækið sem hannar og selur fatnað úr CoconaTM
Nýverið kom í sölu í verslunum 66°Norður fatnaður sem unninn er úr efni sem kallast CoconaTM. Þetta efni er unnið úr kókóshnetuskel og er í raun aukaafurð úr framleiðslu kókosagna sem notaðar eru til þess að hreinsa vatn. Kókoshnetu kolefni er ofið inn í efnisþræðina og og eykur frammistöðu efnisins til muna. Cocona TM er umhverfisvænt og kókoshnetu kolefnið endurnýjar sig við þvott auk þess sem það var valið uppfinning ársin 2005 af TIME Magazine.
CoconaTM efnið skarar fram úr öðrum sambærilegum efnum á þremur sviðum:
- Öndun og kæling: Kókos kolefnið sem ofið er inn í efnisþræðina eyku möguleika efnisins að draga raka frá húðinni. Kolefnið er óreglulega lagað og rakinn safnast saman í holum á yfirborði kolefnisins sem svo losar sig við rakann með uppgufun. Þetta ferli veldur því að notandinn helst þurr auk þess sem ferlið er kælandi.
- Gerðar hafa verið prófanir þar sem þessir eiginleinar CoconaTM og annarra efna voru bornir saman og þar kom í ljós aðþað var 50% aukning í rakadrægni með því að nota CoconaTM efnið m.v. venjulegt Polyester og 45% betri rakadrægni en það efni sem hingað til hefur verið leiðandi í heiminum.
- Vörn gegn útfjólubláum geislum: Kókos kolefnið sem ofið er inn í efnið eykur möguleika efnisins til þess að veita notandanum vörn gegn útfjólubláum geislum með því að draga geislana í sig í stað þess að þeir fari á húðina. Þannig ver CoconaTM húðina geng skemmdum af völdum sólarinnar.
- Möguleikar efninsin til þess að verja notandann gegn útfjólubláaum geislum fjórfaldast við það að tvinna kókos kolefnið inn í efnið.
- Lámarkar líkamslykt: Vegna þess að yfirborð kókos kolefnisins er óreglulegt að lögun dregur það í sig ýmsar tegundir af lyktarsameindum sem svo festast í litlum holum á yfirborðinu sem veldur því að líkamslykt er lágmörkuð. Efnið heldur sameindunum í sér þangað til kolefnið endurnýjast við þvott.
66°Norður er stolt af því að geta boðið íslendinugum upp á fatnað úr þessu frábæra efni. Fatnaðurinn ber nanfnið Grettir enda er hann hannaður fyrir fólk á hreyfingu og því lá það beint við að nefna fatnaðinn eftir einum mesta kappa íslendingasagnanna.
Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
