Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

1.7.2008

Stórsókn í Danmörku

Innrásin heldur áfram, tvær nýjar verslanir og samningur við danska herinn

66 Norður logo66°Norður opnar nýja 300 fermetra sérverslun í Nørreport í haust auk þess sem fyrirtækið mun opna verslun í Magasin du Nord í Árósum . Þetta er einungis hluti af stórsókn 66°Norður í Danmörku en nýlega skrifaði fyrirtækið undir samning við Danska herinn varðandi kaup á fatnaði. Um er að ræða samning við Sirius herdeildina sem er sú deild sem ver nyrsta hluta Grænlands. Þessi hluti Grænlands er óbyggður að mestu og er umhverfið þar mjög erfitt yfirferðar og nýtir Sirius herdeildin m.a. hundasleða til þess að ferðast um. Eins og gefur að skilja er mikill kuldi þegar komið er svo norðarlega og því skiptir höfuð máli að klæðnaður hermannanna sé góður. Þar kemur fatnaður frá 66°Norður að góðum notum enda hágæða fatnaður hannaður fyrir erfiðustu aðstæður.

Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS