Fréttir og viðburðir
17.7.2008
Harðfiskur í pósti um alla Evrópu
66°Norður býður kaupendur velkomna með íslensku góðgæti
Nú stendur yfir ein stærsta útivistarsýning Evrópu OutDoor en á henni sýna allir helstu útivistarframleiðendur vörur sínar fyrir sumarið 2009. Meðal þátttakenda á sýningunni að þessu sinni er 66°Norður en vakti boðskort fyrirtækisins sem sent var út fyrir sýninguna mikla athygli og þótti það frumlegt og skemmtileg. 66°Norður bauð viðskiptavini sína velkomna til sín með því að senda litla harðfiskpoka með pósti til kaupenda víðsvegar um Evrópu. Með þessu skemmtilega framtaki vildi 66°Norður vekja athygli á fyrirtækinu og benda erlendum kaupendum á náin tengls 66°Norður og sjómennsku. Sýningin hófst í gær og hafa viðtökurnar hingað til verið mjög góðar og eru forsvarsmenn fyrirtækisins hæstánægðir með nýju vörurnar og sýninguna í heild.
Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
