Fréttir og viðburðir
14.8.2008
Mary krónprissessa Dana klæðist 66°Norður
í sumarferð krónprinshjónanna á Skagen
Friðrik krónprins Dana fór nýverið í sumarferð til Skagen ásamt Mary krónprinsessu og börnunum þeirra tveimur Christian og Isabellu. Fjölskyldan fór í langan göngutúr meðfram ströndinni ásamt vinum fjölskyldunnar og þar klæddist Mary krónprinsessa svörtu Laugavegs dúnvesti frá 66°Norður til þess að halda á sér hita í skandinavíska sumarveðrinu.
Mikið var fjallað um ferðina í dönsku pressunni og birtust myndir af Mary í
vestinu í fjölda blaða. Í danska blaðinu Her & Nu var sérstaklega fjallað um vestið sem Mary klæddist. Þar var talað um það að hún hefði verið afslappað og skynsamlega klædd við tilefnið enda er svalt sumarveðrið á Norður Jótlandi ekki ólíkt íslensku sumarveðri.
Forsvarsmenn 66°Norður eru hæstánægðir með umfjöllunina sem ferðin og klæðnaður krónprinsessunnar hefur fengið í Danmörku enda má segja að Mary sé fyrirmynd margra danskra kvenna í klæðaburði.
Mikil uppbygging hefur verið hjá 66°Norður í Danmörku og fæst fatnaður frá fyrirtækinu nú í fjölda verslanna auk þess sem fyrsta 66°Norður sérverslunin opnaði í Kaupmannahöfn fyrir ári og stefnt að því að opna aðra nú í haust.
Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
