Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

21.8.2008

Vinningshafar í opnunarleik 66°Norður á Glerártorgi

Í lok júní opnaði 66°Norður nýja og glæsilega verslun á Glerártorgi á Akureyri. Í tilefni opnunarinnar var hrundið af stað skemmtilegum opnunarleik þar sem þátttakendur áttu möguleika á að vinna flottar vörur frá 66°Norður.

Fyrsta vinning, Glym softshell jakka að andvirði 25.500 kr. hreppti

  • Linda Tryggvadóttir

Þrír einstaklingar unnu Gretti Technical top að andvirði 7.800 kr. Vinningshafarnir heita:

  • Edda K. Vilhelmsdóttir
  • Elín Hanna
  • Gylfi Jónsson

Að lokum unnu fimm einstaklingar Vatnajökul dúnsokka en þau eru:

  • Kolbrún Friðgeirsdóttir
  • Ágústa Ólafsdóttir
  • Freydís Antonsdóttir
  • Eygló Antonsdóttir
  • Erla Salome Ólafsdóttir

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS