Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

26.8.2008

Ný íslensk kvikmyndastjarna

Glymur jakkinn frá 66°Norður vekur athygli í hverri kvikmyndinni á fætur annarri

HumanisHeitasta flíkin í kvikmyndum þessa dagana er Glymur softshell jakki frá 66°Norður. Aníta Briem klæðist þessum jakka í kvikmyndinni Journey to the Center of the Earth og hefur jakkinn í kjölfarið fengið mikla athygli erlendis. Það hefur til að mynda sýnt sig í aukinni sölu á jakkanum á vefverslun 66°Norður, frá því myndin var frumsýnd fyrr í sumar.

Nýjasta kvikmyndin sem skartar stjörnum klæddum 66°Norður fatnaði er franska kvikmyndin Humanis sem frumsýnd verður í byrjun árs 2009. Humains fjallar um hóp af vísindamönnum sem eru að rannsaka þróun mannsins og  fjölskyldu sem berst fyrir lífi sínu í gljúfri í svissnesku ölpunum.  Margir af þekktustu leikurum frakka leika í myndinni og má þar fyrstan nefna Dominique Pinon sem m.a. lék í Amélie Poulain. Á meðfylgjandi mynd sést Pinon og meðleikona hans Elise Otzenberger klæðast Glym softshell jökkum frá 66°Norður.

Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600      

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS