Fréttir og viðburðir
18.8.2008
Loksins á Selfossi
Ný og glæsileg verslun sem selur fatnað frá 66°Norður opnar
Áhugamenn um útivist og veiði á Selfossi glöddust nýverið þegar glæsileg verslun með útivistar- og veiðivörur opnaði í bænum. Verslunin, sem ber nafnið Allra veðra von, selur hágæða útivistarfatnað frá 66°Norður auk þess að vera með veiðivörur frá Nielsen.
Verslunin sem er staðsett á Austurvegi 4 er kærkomin nýjung í verslunarmenninguna á Selfossi en íbúar bæjarins hafa lengi beðið eftir því að geta keypt vörur frá 66°Norður í bænum. Forsvarsmenn 66°Norður eru hæstánægir með verslunina og móttökurnar sem hún hefur fengið og er það greinilegt að útivistaráhugi í og við Selfoss er mikill.
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Ágústsson, Sölustjóri 66°Norður
Tölvupóstur: runar@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
