Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

1.9.2008

66°Norður styður íslensku ólympíufarana

Þriggja ára samstarfssamningur milli Íþróttasambands fatlaðra og 66°Norður undirritaður.

66°Norður styður íslensku ólympíufarana

Þriðjudaginn 26. ágúst skrifaði 66°Norður undir þriggja ára stuðnings- og samstarfssamning við Íþróttasamband fatlaðra. Samningurinn felur meðal annars í sér að 66°Norður styrkir íþróttasambandið með fatnaði.

Við undirskriftina var viðstaddur íslenski hópurinn sem er á leiðinni á Ólympíuleika fatlaðra í Peking . Íslensku keppendurnir fengu við undirskriftina Gretti boli frá 66°Norður en þeim munu þau klæðast á meðan á leikunum stendur. Grettir bolirnir eru hluti af nýrri íþróttalínu frá 66°Norður sem m.a. er unnin er úr kókoshnetuskel.

66°Norður er stolt af því að geta stutt við bakið á Íþróttasambandi fatlaðra og þeim íþróttamönnum sem starfa undir formerkjum félagsins. Auk þess óska allir starfsmenn 66°Norður íslensku keppendunum góðrar ferðar og velgengi á Ólympíuleikunum.

Nánari upplýsingar veita:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600     

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.