Fréttir og viðburðir
11.9.2008
Myndbandakeppni Grunnskólanna
15. september
Dómnefnd skipuð þeim Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, Baltasar Kormáki Samper, leikstjóra, Þóri Sigurjónssyni kvikmyndagerðarmanni og Helgu Viðarsdóttur markaðstjóra 66°Norður mun fara yfir myndböndin og velja sigurvegara keppninnar. Myndböndin munu einnig vera sett á netið þar sem netkosning mun fara fram og niðurstaða hennar mun vega inn í mat dómnefndar.
Keppt verður í tveimur aldursflokkum 1. – 7. bekkur og 8. – 10. bekkur. Verðlaunin verða ekki af verri endanum en skóli vinningshafans mun fá SONY HDR-HC5 myndbandsupptökuvél frá Sony Center að andvirði 110.000 kr. sem nemendur skólans hafa aðgang að auk þess sem vinningshafarnir munu fá fatnað frá 66°Norður að andvirði 150.000 kr. í verðlaun.
Myndböndin geta verið allt frá einni til fjórar mínútur að lengd og skal myndbandinu skilað á Windows Media Player formi á heimasíðu 66°Norður: http://www.66north.is/myndbandakeppni-grunnskolanna/ . Einnig biðjum við þátttakendur um að senda dvd disk með myndbandinu á;
66°Norður
b.t. Helgu Viðardóttur
Miðhrauni 11
210 Garðabæ
Þema keppninnar er Útivist og íslenskur iðnaður og er nemendum í sjálfsvald sett hvernig þeir útfæra myndbandið hvort heldur sem þeir gera, tónlistarmyndband, auglýsingu eða stuttmynd.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
