Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

25.9.2008

Verslun Kisan í SoHO býður upp á fatnað frá 66°Norður

Kisan - Concept StoreVerslunin Kisan sem starfrækt er á Laugaveginum opnaði systurverslun í hinu vinsæla hverfi SoHo meðan á tískuviku New York stóð. Stefna verslunarinnar er einföld - hver hlutur er valinn samkvæmt smekk eigendanna, Þórunnar Anspach og Olivier Bremond. Þau blanda saman fágaðri Parísartísku og grófgerðum skrautmunum og prjónavörum frá Íslandi, heimalandi Þórunnar. Hjónin opnuðu fyrstu Kisuna í Reykjavík árið 2005. Síðan þá er verslunin orðin vel þekkt, og dregur að sér fjölda viðskiptavina á miðjum vetri þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífi. “Reykjavík er mjög lítil,” sagði Bremond. “Það búa færri á Íslandi en í SoHo hverfinu. Það er mikil fjárhagskreppa. Fasteignamarkaðurinn er í lægð og margar verslanir leggja upp laupana. Þrátt fyrir það er alltaf fullt í Kisunni.”

Gert er ráð fyrir að salan í hinni 120 fermetra verslun í SoHo, sem staðsett er á Green Street númer 125, muni verða meiri en 1000 dollarar á ferfet, sagði Bremond. “Við opnum með meira en 1 milljón dollara lager.” Verslunarstjóri er Lionel Guy-Bremond, frænda Oliviers. Þórunn og Olivier ætla að dvelja eina viku á mánuði í New York til að fínstilla alla þætti verslunarrekstursins. “Þetta er mjög persónulegt ferli,” sagði Þórunn Anspach. “Hugmyndin var að bjóða til sölu alla þá hluti sem við unnum best.” Verð á varningi í búðinni er frá 5 dollurum til 5.000 dollara, er frá tóndiskum, bókum og bíómyndum sem endurspegla smekk eigendanna, og allt til tísku og húsbúnaðar.

Þrátt fyrir að sum tískumerki, eins og Sonia Rykiel, séu seld í versluninni Barneys New York,benti Þórunn á að verslunin sé sú eina sem selji merkin í þeirra hverfi, eða “downtown.” Þess fyrir utan er að “við ætlum að stilla fram vörunum á mjög ólíkan hátt frá því sem þessar stóru verslanir gera ... Þetta er fyrir ungar konur. Þetta er alveg geggjað.”

Þórunn Anspach er álíka spennt yfir stelpulegum stíl Orla Kiely, Vanessa Bruno, Les Prairies de Paris og Ports 1961. Þarna vera einnig prjónaðir hattar frá Girl and the Gorilla, vettlingar búnir til af tveimur stúlkum frá Hamborg, hattar frá Valeur í Japan og föt frá 66°Norður á Íslandi, svari landsins við The North Face. Tveir af dýrustu hlutunum eru handtaska frá Rykiel sem kostar 2.500 dollara, og stór vasi hannaður af Alvar Aalto á 3.500 dollara.

“Lúxus ætti að vera fyrir alla,” sagði Bremond. “Okkar stíll og andi New York passa frábærlega saman. Við dáum fallega hluti en við erum samt “kúl”. Kisan í SoHo var hönnuð af Work Architects Co., sem hönnuðu einnig verslun og höfuðstöðvar Diane von Furstenberg á West 14th Street, og P. S. 1 nútímalistamiðstöðina í Queens hverfinu í New York. Hún hefur hreint og mínímalískt útlit. Hið rúmlega 4 metra háa loft á að endurspegla snævi þakið hálendi Íslands, með þríhyrningslaga fleti og ljós sem hallast undir mismunandi hornum.

Hugmyndin að Kisunni þróaðist meðan Þórunn og Olivier sinntu fyrri störfum sem stofnendur Marathon, framleiðslufyrirtækis sjónvarpsefnis staðsettu í París. Árið 2005 seldu hjónin fyrirtækið og fluttu til Íslands. “Við höfðum ferðast mikið vegna starfsins og séð marga frábæra hluti,” sagði hún. “Við veljum hluti af miklum ákafa. Okkur langar ekki að stunda viðskipti á internetinu. Við viljum að fólk komi í verslunina.”

Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600     

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

Um Kisan

Kisan er hugmyndabúð þeirra Þórunnar Anspach og Olivier Bremond. Þau hafa ferðast og búið víða um heim og hafa sérvalið inn í verslunina sumt af því besta sem finnst í heiminum, hvort sem er í barnafötum, vörum fyrir heimilið eða sérstaka gjafavöru sem kemur á óvart.

Heimasíða fyrirtækisins er www.kisan.is


Veldu land : IS