Fréttir og viðburðir
2.10.2008
66°Norður á Sjávarútvegssýningunni.
Níunda Sjávarútvegssýninging verður haldin hátíðleg helgina 2. - 5. október í Fífunni Kópavogi. Sjóklæðagerðin 66°NORÐUR verður á sýningunni enda hefur fyrirtækið varið íslenska sjómenn gegn veðri og vindum í yfir 80 ár. Sjóklæðagerðin var stofnuð árið 1926 og hefur síðan þá verið leiðandi í framleiðslu vinnufatnaðar. Á þessum tíma hafa orðið gríðarlegar framfarir í efnum og framleiðsluþáttum vinnufatnaðar. Frá tíma olíuborins striga að PVC , flísefni og hátækni öndunarefnum hefur 66°NORÐUR verið framarlega á sínu sviði og notar fyrirtækið eingöngu bestu fáanlegu efnin í framleiðslu sína s.s. Polartec® og eVENT®.
66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda og leggur metnað sinn í það að bjóða upp á hágæða fatnað sem er vatnsheldur, endingargóður, þægilegur, fjölbreyttur og flottur. 66°NORÐUR vinnur náið með Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu en fyrirtækið framleiðir fatnað fyrir björgunarsveitir landsins auk þess sem Lögreglan, Slökkvikliðið og starfsmenn margra af stærstu fyrirtækjum landsins klæðast fatnaði frá 66°Norður.
Mynd: Bent Marinósson.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
