Fréttir og viðburðir
2.10.2008
Vatnajökull PrimaLoft® - Framsækinn og nýstárlegur jakki.
Nýverið kom á markaðinn Vatnajökull PrimaLoft® jakki frá 66°NORÐUR. Jakkinn er bæði framsækinn og nýstárlegur en 66°NORÐUR er fyrsti íslenski framleiðandinn sem notar PrimaLoft® einangrun í útivistarfatnað. PrimaLoft® er örtrefja einangrun sem var þróuð fyrir bandaríska herinn sem valkostur gegn dúnfyllingu vegna þess að dúnfylling tapar eiginleikum sínum þegar hún blotnar.
PrimaLoft® veitir hágæða einangrun gegn kulda um leið og það er einstaklega mjúkt, létt og andar vel. Þar að auki er PrimaLoft® fyllingin vatnafráhrindandi sem gerir það að verkum að líkaminn helst þurr og hlýr, jafnvel við erfiðustu aðstæður.
Vatnajökull PrimaLoft® jakkinn frá 66°NORÐUR er sniðinn þannig að hægt er að vera í honum innanundir skelinni sem hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður þar sem samtímis getur verið mikill kuldi og raki. Jakkinn er auk þess með nýstárlegum saumi sem þróaður var af 66°Norður sem gerir það að verkum að óþarfi er að vera með laust fóður innan í jakkanum eins og margir aðrir framleiðendur gera. Viðtökurnar við jakkanum hafa verið frábærar og augljóst að þarna er á ferð góð viðbót við fjölbreytta útivistarlínu
66°NORÐUR.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.




