Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

2.10.2008

66°Norður verðlaunað fyrir framúrskarandi hönnun.

Embla barnajakkinn vinnur Poartec® APEX hönnunarverðlaunin

Embla barnajakkinn vinnur Poartec® APEX hönnunarverðlauninNýverið tilkynnti Polartec® sem er leiðandi framleiðandi flísefnis í heiminum, hvaða fyrirtæki hlytu APEX verðlaunin í ár. Polartec® leggur mikið upp úr þróun nýjunga í efnum og í því skyni verðlaunar fyrirtækið á hverju ári þá aðila sem best ná að túlka þennan anda fyrirtækisins. Polartec® APEX verðlaunin eru veitt þeim hönnuðum og fyrirtækjum sem gera framúrskarandi vöru úr Polartec® efni. Flíkur og aukahlutir eru dæmdir eftir nýbreytni, hönnun, sniði og notkunarmöguleiknum.

66°Norður er stolt að segja frá því að fyrirtækið vann APEX verðlaunin í ár. Margir stærstu framleiðendur útivistarfatnaðar nota Polartec® efni í sínar vörur og þess vegna er það stór áfangi fyrir 66°Norður að vinna þessi verðlaun, sérstaklega í ljósi þess að þetta er annað árið í röð sem 66°Norður hreppir þessi eftirsóttu verðlaun en Víkur hestafatnaðurinn var verðlaunaður í fyrra. Alls hefur 66°Norður unnið APEX verðlaunin átta sinnum.
Verðlaunajakkinn í ár kallast Embla og er flottur og stílhreinn barna flísjakki sem hannaður er af Bergþóru Guðnadóttur. Jakkinn er unninn er úr Polartec® WindPro® Highloft® efni sem er fjórum sinnum vindþéttara en venjulegt flísefni. Embla mun fást í öllum verslunum 66°Norður en jakkinn er væntanlegur í byrjun október.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.

 


Veldu land : IS