Fréttir og viðburðir
7.10.2008
Jake Gyllenhaal í Glym softshell jakka
Jake Gyllenhaal sást um helgina yfirgefa veitingastað í Lundúnum klæddur brúnum Glym Softshell jakka frá 66°Norður. Jake er í Lundúnum við tökur á Disney myndinni Prince of Persia.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikarinn sést klæðast
66°Norður fatnaði en fyrr í sumar voru teknar myndir af honum í Los Angeles ásamt kærustu sinni Reese Witherspoon þar sem hann klæddist Glym þriggja laga eVENT öndunarjakka.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
