Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

14.10.2008

Bjart framundan með 66°Norður

Göngur fyrir almenning með 66°NORÐUR og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum

Bjart framundan með 66°NorðurSíðastliðið vor stóð 66°NORÐUR ásamt Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum fyrir dagskrá sem bar heitið „Toppaðu með 66°NORÐUR“ og miðaði meðal annars að því að gera almenningi kleift að ganga á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands. Viðbrögðin við dagskránni voru frábær og nú hafa fyrirtækin aftur tekið höndum saman og útbúið skemmtilega dagskrá undir nafninu „Bjart framundan með 66°Norður“.

Dagskráin er í senn spennandi og áhugaverð og er hugsuð fyrir alla þá sem vilja hreyfa sig og kynnast íslenskri náttúru í vetrarskrúða. Vikulega verður gengið á fjöll og firnindi í nærsveitum höfuðborgarinnar en allt eru þetta svæði sem fólk leggur alla jafna ekki leið sína um á þessum árstíma þegar skammdegið er sem mest. Dagskráin er með svipuðu sniði og áður og miðar að því að gefa fólki kost á því að stunda útivist undir öruggri leiðsögn í mesta skammdeginu. Dagskrána má kynna sér nánar hér að neðan:

Fimmtudagur 23. okt. kl. 20:00 – Kynningarfundur í húsnæði 66°NORÐUR í Faxafeni.
Laugardagur  25. okt. kl. 09:00 – Hressandi hringur um Elliðaárdal. Hist við Árbæjarlaug.
Miðvikudagur 29. okt. kl. 17:30 – Eldborg, Vegghamrar og Geitahlíð. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni
Miðvikudagur 5. nóv. kl. 17:30 – Umhverfis Elliðavatn. Hist við Árbæjarlaug.
Miðvikudagur 12. nóv. kl. 20:00 – Fræðslufundur í húsnæði 66°Norður í Faxafeni.
Laugardagur 15. nóv. kl. 17:30 – Vífilsfell. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Miðvikudagur 19. nóv. kl. 17:30 – Haukafjöll, Stardalshnúkar, Tröllafoss. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni
Miðvikudagur 26. nóv. kl. 17:30 – Heiðmörk, Búrfellsgjá. Hist við 66°NORÐUR Faxafeni
Laugardagur 6. des. Kl. 09:00 – Esja, Þverfellshorn. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Miðvikudagur 10. des.  Kl. 17:30 – Húsfell og Helgafell. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Miðvikudagur 17. des. Kl. 17:30 – Kerlingarskarð, Þríhnúkar og Stóra Kóngsfell. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni
Laugardagur 27. des. Kl. 08:00 – Hafnarfjall. Hist í húsnæði ÍFLM á Vagnhöfða 7.
Miðvikudagur 7. jan. Kl. 17:30 – Umhverfis Kleifarvatn. Hist við 66°NORÐUR í Faxafeni.
Laugardagur 17. jan. kl. 08:00 – Botnssúlur. Hist í húsnæði ÍFLM á Vagnhöfða 7

Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600     

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS