Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

20.10.2008

Myndbandakeppni Grunnskólanna lokið

Netkosning 23.október – 5. nóvmeber og úrslit kynnt í viku 46

Myndbandakeppni 66°NorðurNú er myndbandakeppni grunnskólanna lokið en alls bárust hátt í 100 myndbönd í keppnina alls staðar að. netkosning mun fara fram á heimasíðu 66°NORÐUR (www.66north.is) dagana 23. október – 5. nóvember þar sem hver einstaklingur getur valið eitt myndband og gefið því atkvæði sitt. (Einungis er hægt að kjósa einu sinni úr hverri tölvu).

Niðurstaða netkosningarinnar mun vega inn í mat dómnefndar en hana skipa þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, Baltasar Kormákur Samper, leikstjóri, Þórir Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður og Helga Viðarsdóttir markaðstjóri 66°NORÐUR.

Keppt er í tveimur aldursflokkum 1. - 7. bekkur og 8. - 10. bekkur og eru verðlaunin ekki af verri endanum en skóli vinningshafans mun fá SONY HDR-HC5 myndbandsupptökuvél frá Sony Center að andvirði 110.000 kr. sem nemendur skólans hafa aðgang að auk þes sem vinningshafarnir munu fá fatnað frá 66°Norður að andvirði 150.000 kr. í verðlaun.

Nánari upplýsingar veitir:
Hjördís María Ólafsdóttir, markaðsdeild 66°Norður
Tölvupóstur: hjordis@66north.is
Símanúmer: 535-6600     

Einnig eru upplýsingar um keppnina á heimasíðu 66°Norður: http://www.66north.is/myndbandakeppni-grunnskolanna

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS