Fréttir og viðburðir
28.10.2008
Bjart framundan með 66°Norður
Yfir 130 manns mættu á kynningarfund vegna ævintýralegra skammdegisgangna.

Ríflega 130 manns mættu á kynningarfund vegna dagskrárinnar „Bjart framundan“ sem 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn standa fyrir. Dagskráin er í senn spennandi og áhugaverð og er hugsuð fyrir alla þá sem vilja hreyfa sig og kynnast íslenskri náttúru í vetrarskrúða. Vikulega verður gengið á fjöll og firnindi í nærsveitum höfuðborgarinnar en allt eru þetta svæði sem fólk leggur alla jafna ekki leið sína um á þessum árstíma þegar skammdegið er sem mest. Dagskráin er með svipuðu sniði „Toppaðu með 66°Norður“ og miðar að því að gefa fólki kost á því að stunda útivist undir öruggri leiðsögn í mesta skammdeginu.
Þeim sem ekki mættu á fundinn en hafa áhuga á að taka þátt í „Bjart framundan“ er bent á að hafa samband við Íslenska Fjallaleiðsögumenn (587-9999) eða skoða heimasíðu 66°Norður (www.66north.is/bjart-framundan) en þar er hægt að finna nánari upplýsingar um ferðina.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
