Fréttir og viðburðir
29.10.2008
Kisan opnar í New York
66°NORÐUR vekur athygli í opnunarteiti
Nú í haust opnaði Kisan Concept store fyrstu verslun sína fyrir utan landsteinana. Verslunin er í New York, nánar tiltekið í hjarta Soho á 125 Green Street. Opnun Kisunnar markar nýtt upphaf sölu á kven- og barnafatnaði frá 66°NORÐUR á Manhattan.
Kisan á Laugavegi var stofnuð árið 2005 af Þórunni Anspach og Olivier Brémond. Verslunin býður upp á hrífandi blöndu af fáguðum vörum eins og íslendingar þekkja. Verslunin í New York mun einnig bjóða upp á sérstaka blöndu af þekktum vörumerkjum og vörum frá ungum hönnuðum.
Nýlega var haldið opnunarteiti í versluninni í New York þar sem kven- og barnafatnaðurinn frá 66°NORÐUR vakti sérstaka athygli. Sem dæmi um vörur sem vöktu athygli var Vatnajökull PrimaLoft dömujakkinn sem einnig hefur hlotið verðskuldaða athygli hér heima, Bifröst barnapeysan sem byggir á íslensku lopapeysunni og ungbarnagallarnir sem íslenskar mæður þekkja vel.
66°NORÐUR óskar eigendum Kisunnar til hamingju með opnun á glæsilegri verslun.
Á myndinni eru eigendur Kisunnar Þórunni Anspach og Olivier Brémond ásamt Halldóri G. Eyjólfssyni forstjóra 66°NORÐUR.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.




