Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

30.10.2008

66°NORÐUR heldur opnunarpartý CMJ tónlistarhátíðarinnar í New York

66°NORÐUR heldur opnunarpartý CMJ tónlistarhátíðarinnar í New York Fimmtudaginn 20. október hélt 66°NORÐUR annað árið í röð opnunarteitið Conflict of Interest X, í tengslum við CMJ tónlistarhátíðina. CMJ tónlistarhátíðin er árlegur viðburðuir í New York á þessum árstíma. 66°Norður innréttaði staðinn með íslensku þema þar sem kalt veðurfar og myndir frá Íslandi voru alsráðandi. Ljósmyndarinn Diana Levine var á staðnum og festi tónleikagesti á filmu þegar þeir prufuðu fatnað frá 66°Norður.  Kíkið á myndirnar á:

http://www.flickr.com/photos/thesyndicate/
sets/72157608267340364/
.

66°Norður er stolt af því styrkja hátíðina og styðja þannig við bakið á ungum og upprennandi tónlistarmönnum. CMJ gengur út á það að finna næstu stórstjörnuna í tónlistarheiminum, hvort sem um er að ræða alveg óþekkt tónlistarmenn eða tónlistarmenn sem þegar hafa umboðsmenn. Ekki bar á öðru en fatnaðurinn frá 66°Norður félli vel í kramið hjá þessum flotta hópi tískufrömuða.

66°NORÐUR heldur opnunarpartý CMJ tónlistarhátíðarinnar í New York Meðal þeirra sem komu fram í partýinu voru: Margot and the Nuclear, So and So’s, and you will know us by the Trail of Dead, og Rival Schools. Auk þess sem grínistinn Robert Kelly skemmti gestum.

Vinsælustu flíkurnar í partýinu voru Þórsmörk Parka og Esja Parka úlpurnar auk Kalda Arctic húfunnar sem margir féllu fyrir.

Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600     

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS