Fréttir og viðburðir
31.10.2008
Netkosningin hafin!
Skemmtileg og flott myndbönd gerð af grunnskólanemum.
Nú stendur netkosningin í Myndbandakeppni grunnskólanna sem hæst á heimasíðu 66°NORÐUR http://www.66north.is/myndbandakeppni-grunnskolanna/ Alls bárust 80 myndbönd í keppnina, 25 í yngri flokknum en 55 í eldri flokknum. Það hefur greinilega verið lagður mikill metnaður í myndböndin og eru þau eins fjölbreytt og þau eru mörg. Meðal myndbandanna eru nokkur tónlistarmyndbönd þar sem krakkarnir sömdu sjálf samið tónlistina, stuttmyndir, klippimyndir, auglýsingar og meira að segja ein heimildarmynd um kétti.
Við hvetjum alla til að skoða myndböndin!
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Fyrirtækið á einnig og rekur saumastofur í Lettlandi þar sem stærstur hluti af fatnaði fyrirtækisins er framleiddur.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
