Fréttir og viðburðir
11.11.2008
Kynningarfundur um klæðnað og útbúnað á fjöllum
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir helstu atriði í útbúnaði í tengslum við Bjart framundan dagskrá 66°Norður.

Miðvikudaginn 12. nóvember kl.20:00 standa 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrir kynningarfundi um útbúnað í fjallaferðum í húsakynnum 66°Norður, Faxafeni 12. Kynningin er hluti af dagskránni Bjart framundan með 66°Norður sem gefur almenningi kost á að upplifa ævintýralegar skammdegisgöngur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Fjallað verður um fatnað, útbúnað og næringu í fjallaferðum og býðst gestum að versla og fá ráðleggingar frá fagmönnum að kynningu lokinni. Einning verður stutt ferðakynning á vegum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.
Allir eru velkomnir á kynningarfundinn og ennþá er hægt að skrá sig í göngudagskrána Bjart framundan með 66°Norður. Þeir sem taka þátt fá þátttökukort sem gefur 25% afslátt af útivistarfatnaði frá 66°Norður og 15% afslátt af skóm og aukabúnaði. Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér æfingaáætlunina.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi. Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.




