Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

17.11.2008

Úrslit í myndbandakeppni grunnskólanna

Nú liggja fyrir úrslit í myndbandakeppni grunnskólanna. Allst bárust 80 myndbönd í keppnina og var fjölbreytni myndbandanna mikil, allt frá klippimyndum að tónlistar-myndböndum.

Netkosning stóð um myndböndin frá 23. október til 5. nóvember og var þátttaka í henni framar björtustu vonum en hátt í 2.500 atkvæði voru greidd. Niðurstaða netkosningarinnar vó inn í mat dómnefndar sem nú hefur komist að niðurstöðu. Dómnefnda skipuðu: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Baltasar Kormákur Samper, Þórir Sigurjónsson og Helga Viðarsdóttir .

Sigurvegari í yngri flokknum (1. – 7. bekk) var 6.HFF í Háteigsskóla en þau gerðu klippimyndband um Björn sem kemur til Íslands. Í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram að það sést að mikil vinna og metnaður hefur verið lagður í myndbandið. Það sést meðal annars á leikmyndinni sem krakkarnir gerðu. Hægt er að sjá sigurmyndbandið hér:

{C0067F50-B351-4183-9CE6-86AC318B4DFD}_bangsi 66nor.wmv

Sigurvegari í eldri flokknum (8. – 10. Bekk) voru tvímenningarnir Arnór Bragi Jóhannsson og Elí Kristberg Hilmarsson úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Þeir gerðu tónlistarmyndband við frumsamið lag og texta. Í umsögn dómnefndar kemur fram að það sé gaman að sjá að þeir hafi fengið skólakórinn með sér í lið við gerð myndbandsins. Hægt er að sjá myndbandið hér:

{D646CE18-3B86-4F92-ABA5-F082B119D235}_Arnór.wmv

Verðlaunin eru ekki af verri endanum en bæði Háteigsskóli og Grunnskólinn í Þorlákshöfn munu fá  SONY HDR-HC5 myndbandsupptökuvél andvirði 110.000 kr. sem nemendur skólans munu hafa aðgang að auk þess vinningsliðin fatnað frá 66°Norður að andvirði 150.000 kr. í verðlaun.

Verðlaunin verða afhent í verslun 66°Norður í Faxafeni 12, laugardaginn 22. nóvember kl. 11:00.

Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er: www.66north.is


Veldu land : IS