Fréttir og viðburðir
24.11.2008
Verðlaunaafhending í Myndbandakeppni grunnskólanna
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Menntamálaráðherra, afhenti verðlaun í Myndbandakeppni grunnskólanna í verslun 66°Norður, Faxafeni 12, laugardaginn 22. nóvember kl.11:00
6.HHF í Háteigsskóla varð hlutskarpastur í yngri flokknum en þau gerðu klippimyndband um Björn sem kemur til Íslands. Háteigsskóli fékk því Sony HDR-HC5 myndbandsupptökuvél sem nemendur skólans hafa aðgang að auk þess sem allir nemendurnir í bekknum fengu fatnað frá 66°Norður.
Tvímenningarnir Arnór Bragi Jóhannsson og Elí Kristberg Hilmarsson úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn urðu hlutskarpasti í eldri flokknum en þeir gerðu tónlistarmyndband við frumsamið lag og texta. Grunnskólinn í Þorlákshöfn fékk því einnig Sony HDR-HC5 myndbandsupptökuvél fyrir nemendur skólans auk þess Arnór og Elí fengu hvor fyrir sig fatnað að andvirði 75.000 kr. frá 66°Norður í verðlaun.
66°Norður er ánægt með viðtökurnar sem myndbandakeppnin fékk og gaman að sjá hversu mikið af hæfileikaríkum krökkum eru í grunnskólum landsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður
Tölvupóstur: helga@66north.is
Símanúmer: 535-6600
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er: www.66north.is
