Fréttir og viðburðir
1.12.2008
Myndböndin úr myndbandakeppninni aðgengileg á netinu
Nú eru öll myndböndin sem tóku þátt í myndbandakeppni grunnskólanna aðgegnileg á heimasíðu 66°Norður; www.66north.is undir kaflanum "Um 66°Norður".
Alls voru send inn í keppnina 80 myndbönd sem kepptu í tveimur aldursflokkum; 1 .- 7. bekkur og 8. - 10. bekkur. Sigurvegarar í keppninni að þessu sinni voru 6.HHF í Háteigsskóla og tvímenningarnir Arnór Bragi Jóhannsson og Elí Kristberg Hilmarsson úr Grunnskólanum í Þorlákshöfn.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er: www.66north.is
