Fréttir og viðburðir
11.12.2008
Rokkstjarna klæðist 66°Norður

Breski tónlistarmaðurinn Gavin Rossdale var nýverið myndaður í Glym softshell jakka frá 66°Norður. Gavin var ásamt eiginkonu sinni tónlistarkonunni Gwen Stefani staddur á árlegu skíðamóti í Deer Valley í Utah.
Fjölskyldan skemmti sér vel á skíðum og tók Gavin meira að segja þátt í mótinu sjálfur. Eins og myndin sýnir þá kann Gavin að velja rétta fatnaðinn í brekkurnar en hann valdi að klæðast Glym softshell jakka frá 66°Norður.
Gavin er nýjasti meðlimurinn í ört stækkandi hópi frægra aðdáenda 66°Norður en þar eru fyrir nöfn eins og Jake Gyllenhaal, Quinten Tarantino, Eli Roth, Scarlett Johansen, Mary krónprinsessa dana ásamt fleirum.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er: www.66north.is.




