Fréttir og viðburðir
16.1.2009
Toppaðu með 66°Norður
66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á heildstæða og raunhæfa æfingaáætlun, Toppaðu með 66°Norður, sem ætti að gera sem flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúk. Dagskráin byggist á göngum og fræðslu um hina ýmsu þætti sem hafa verður í huga þegar tekist er á við fjöll og firnindi. Þetta er annað árið í röð sem 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn standa að Toppaðu með 66°Norður dagskránni en í fyrra gengu um 170 manns á Hvannadalshnúk auk þess að sigra fleiri toppa eins og Heiðarhorn, Eyjafjallajökul og Snæfellsjökul, þann síðast nefnda í hátt í 30°C frosti.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa í áranna rás verið leiðandi í því að bjóða upp á ferðir á Hvannadalshnúk og önnur fjöll og búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á því hvernig best sé að ná takmarkinu – toppnum – hverju sinni. 66°Norður hefur í yfir 80 ár verið leiðandi fyrirtæki í þróun og framleiðslu hágæða útivistarfatnaðar, sem nauðsynlegur er hverjum þeim sem hyggur á fjallgöngur og útivist.
Gaman er að geta þess að heildarverð dagskrárinnar er óbreytt frá því í fyrra eða 29.900 kr. Fyrir þá sem ekki telja sig þurfa á öllum pakkanum að halda er í boði að kaupa 2 fjöll og Hnúk á 26.900 kr.
Fyrir þá sem tóku þátt í Toppaðu með 66°Norður dagskránni í fyrra eða hafa nú þegar náð toppi Hvannadalshnúks verður í boði að hafa Hrútsfjall í Vatnajökli sem lokatakmark dagskrárinnar. Dagskrána má kynna sér nánar hér að neðan:
Dagskrá:
11.02.09 - miðvikudagur
kl. 20.00: Kynningarkvöld þar sem dagskráin verður kynnt auk stuttrar myndasýningar.
18.02.09 - miðvikudagur
kl. 18.00: Heiðmörk v/Elliðavatn
28.02.09 – laugardagur
kl. 09.00: Hengill, Skeggi
04.03.09 - miðvikudagur
kl. 20.00: Fræðslukvöld um fatnað
11.03.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Heiðmörk v/Vífilsstaði
18.03.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Húsfell/Helgafell
28.03.09 - laugardagur
kl. 08.00: Skarðsheiði
01.04.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Hellaferð í helli í nágrenni Reykjavíkur
08.04.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Vífilsfell
15.04.09 – miðvikudagur
kl. 20.00: Fræðslukvöld um jöklaferðir
18.04.09 – laugardagur
kl. 07.00: Eyjafjallajökull (skerjaleið)
29.04.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Esjan Kerhólakambur
06.05.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Keilir
16.05.09 – laugardagur
kl. 07.00: Hekla
20.05.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Sveifluháls
27.05.09 - miðvikudagur
kl. 18.00: Dýjadalshnúkur
03.06.09 – miðvikudagur
kl. 18.00: Móskarðshnúkar
06.06.09 – laugardagur
kl.05.00 Hnúkur(Sandfell)/Hrútsfjall
13.06.09 - laugardagur
kl. 05.00 Hnúkur(Sandfell)/Hrútsfjall
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
