Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

18.2.2009

66°Norður vekur athygli á erlendum sýningum

66°Norður vekur athygli á erlendum sýningum66°Norður hefur undanfarið verið á sýningum víðsvegar um heiminn til að kynna nýju vetrarlínu fyrirtækisins. Stærstu sýningarnar sem fyrirtækið tók þátt í að þessu sinni voru OutDoor Retailer sem er stærsta útivistarsýning Bandaríkjanna og svo ISPO sem haldin er í München og er stærsta útivistarsýning Evrópu. Viðbrögð kaupenda og blaðamanna við nýju línunni voru frábærar og hefur fyrirtækinu borist fjöldinn allur af fyrirspurnum um merkið og stöðu þess erlendis. Nýja vetrarlínan hittir í mark hjá mjög breiðum hópi fólks þar sem hún samanstendur bæði af tæknilegum útivistarfatnaði eins og Vatnajökul línunni og götufatnaði úr hágæða efnum sem gengur undir nafninu „Icelandic Living”. Að sögn Halldórs Gunnars Eyjólfssonar, forstjóra 66°Norður, hefur fyrirtækið í kjölfar sýninganna hafið samstarf um söludreifingu á 66°Norður fatnaði í 6 nýjum löndum sem fyrirtækið hefur hingað til ekki selt vörur sínar til. Fljótlega verður því hægt að nálgast vörur fyrirtækisins í 19 löndum víðsvegar um heiminn. „Það er alveg ljóst af þeim viðbrögðum sem við fengum nú, að fyrirtækið sé á réttri leið þar sem viðtökurnar hafa verið mun betri í ár en fyrri ár þrátt fyrir alheimskreppu“. Sagði Halldór ánægður með árangurinn.

Áhugi blaða- og fréttamanna á vörumerkinu var mikill eins og áður sagði og birtust til að mynda tvær fréttir um merkið í OR Daily þar sem annars vegar var talað um það að Langjökull Primaloft jakkinn væri „showstopper“ og hins vegnar fjallað um langa sögu fyrirtækisins og rætur þess í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er: www.66north.is


Veldu land : IS