Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

3.3.2009

Fræðslukvöld 66°Norður

Fræðslukvöld og skemmtileg myndasýning verður á miðvikudaginn 4. mars kl. 20:00.

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fara yfir allt það sem hafa ber í huga við val á fatnaði fyrir fjallgöngur auk þess sem rætt verður um mikilvægi næringar. Tómast Guðbjartsson, læknir, mun einnig fjalla um háfjallaveiki.

Staðsetning: Verslun 66 Norður, Faxafeni 12.

Nánari upplýsingar á www.66north.is og www.fjallaleidsogumenn.is.


Veldu land : IS