Fréttir og viðburðir
8.4.2009
Háfjallaveiki á Monte Rosa
Í ágúst síðastliðnum tóku nokkrir læknar úr Félagi íslenskra fjallalækna þátt í vísindaleiðangri ásamt nokkrum læknum við háskólasjúkrahúsið í Lundi. Tilgangurinn var að rannsaka háfjallaveiki í næsthæsta fjalli Alpanna, Monte Rosa (4634 m). Íslensku læknarnir sem tóku þátt í leiðangrinum voru: Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir, Engilbert Sigurðsson geðlæknir, Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Orri Einarsson röntgenlæknir.
Leiðangurinn var styrktur af 66°Norður og Actavis og voru framkvæmd taugasálfræðipróf í mismunandi hæð, m.a. í Margaretha Hut sem stendur hæstur fjallaskála í Ölpunum á bjargbrún Signalkuppe (4559 m). Mæld var súrefnismettun í blóði, púls og loftþrýstingur. Auk þess voru teknar blóðprufur til þess að mæla ensímið S-100, en það losnar við súrefnisskort í heila- og taugavef. Þetta ensím hefur m.a. verið notað til þess að spá fyrir um horfur sjúklinga með blóðþurrð í heila.
Leiðangurinn tókst vel enda voru aðstæður til göngu og rannsókna góðar. Helstu niðurstöður leiðangursins voru þær að ensímið S100B hækkaði marktækt þegar komið var í rúmlega 3000 m hæð þar sem súrefni er minna í andrúmslofti. Minni breytingar urðu á taugasálfræðiprófum, enda þótt tilhneigingar gætti til minni getu í viðbrögðum, sveigjanleika í hugsun og ákvarðanatöku.
Skrifuð hefur verið grein um niðurstöður ferðarinnar sem stefnt er að birtist í erlendu vísindariti, enda er þetta í fyrsta skipti sem sýnt er fram á að S100B hækki í þunnu lofti. Einnig er fyrirhugað að kynna niðurstöðurnar á Vísindaþingi Skurðlæknafélags Íslands og Svæfinga- og Gjörgæslulæknafélags Íslands um næstu helgi.
66°Norður er ánægt með að hafa getað aðstoðað þennan góða hóp lækna við rannsóknarvinnuna.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.




