Fréttir og viðburðir
28.4.2009
Engin laus störf í sumar
Sjóklæðagerðin 66°Norður vill þakka öllum þeim áhugasömu einstaklingum sem hafa sótt um vinnu í hjá fyrirtækinu síðustu vikurnar.
Búið er að ráða í allar stöður og því eru engin laus störf hjá fyrirtækinu eins og er.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er: www.66north.is
