Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

4.5.2009

Besti nýliðinn að mati Runners World tímaritsins

66°Norður er með umboð fyrir LaSportiva skó og selur meðal annars LaSportiva hlaupaskó sem hafa unnið til verðlauna í tímaritinu Runners World. LaSportiva er ítalskt fyrirtæki sem er þekkt fyrir að framleiða hágæða gönguskó, allt frá léttum skóm upp í háfjallaskó sem henta göngu á Mt. Everest.

Á síðustu árum hefur LaSportiva bætt hlaupaskóm fyrir víðavangshlaup inn í vörulínu sína með góðum árangri. Þekktastir eru Fireblade hlaupaskórnir sem fást í verslunum 66°Norður. Fireblade skórnir eru léttir, þægilega bólstraðir og styðja vel við fótinn um leið og þeir eru sveigjanlegir. Hællinn er sérmótaður fyrir stöðugleika á sama tíma og sólinn er með höggvörn og góðu gripi svo auðvelt er að taka af stað og stoppa. Það kom því ekki á óvart að Runners World tímaritið verðlaunaði Fireblade skóna frá LaSportiva í flokknum besti nýliðinn (Best Debut). Í umsögn um skóna kemur meðal annars fram að Fireblade skórnir séu fremstir í flokki nýrrar kynslóðar hlaupaskóa fyrir víðavangshlaup. Annar góður kostur við Fireblade skóna er að fyllingin í tungunni og hælnum er úr efni sem þornar fljótt og kemur það sér einstaklega vel á Íslandi í ljósi veðurfarsins hér.

Fireblade hlaupaskórnir kosta 14.500 kr. og fást í verslunum 66°Norður í Faxafeni 12, Miðhrauni 11 og Gerártorgi Akureyri.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar. Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS