Fréttir og viðburðir
4.6.2009
Erlendir blaðamenn ganga á Hvannadalshnúk
Frá því í byrjun febrúar hefur stór hópur á vegum 66°Norður og Íslenskra Fjallaleiðsögumannna tekið þátt í dagskrá sem ber nafnið Toppaðu með 66°Norður og flest í því að gera sem flestum kleift að standa á hæsta tindi Íslands, Hvannadalshnúk. Nú er komið að því að hópurinn reyni að ná takmarki sínu. Hópurinn mun skiptast í tvennt og ganga á Hnúkinn í tveimur hópum annars vegar 6. júní og hins vegar 13. júní.
Fjórir erlendir blaðamenn eru á leiðinni til Íslands til þess að taka þátt í göngunni á laugardaginn 6. júní. Blaðamennirnir eru frá virtum útivistar- og ferðatímaritum á borð við Trail Runner Magazine og Oxygen. Blaðamennirnir verða í nokkra daga á Íslandi og munu þeir á meðan á dvöl þeirra stendur njóta hins besta sem Ísland hefur upp á að bjóða. Blaðamennirnir fréttu af Toppaðu með 66°Norður dagskránni eftir velheppnaða ferð á Hvannadalshnúk síðasta vor þar sem um 300 manns náðu takmarki sínu og stóðu á hæsta tindi Íslands. Blaðamönnunum fannst athyglisvert hvernig fyrirtækin tvö, 66°Norður og Íslenskir Fjallaleiðsögumenn, væru að virkja almenning til útivistar um leið og þau vektu þátttakendur til umhugsunar um hlýnun jarðar og minnkun jökla.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
Um Íslenska Fjallaleiðsögumenn
Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn, opna augu fólks fyrir fjallaferðum, stuðla að verndun viðkvæmrar náttúru norðurslóða og að auka gæði og fagmennsku í leiðsögn.
Trúir þessum markmiðum, hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn staðið í farabroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í þróun nýrra ferða, umhverfismálum, menntun starfsmanna og öryggismálum. Sem þjónustufyrirtæki leggja Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áherslu á breidd í ferðum, allt frá auðveldum dagsferðum til erfiðra heimskautaleiðangra, með mottóið ævintýri fyrir alla að leiðarljósi.
Heimasíða fyrirtækisins er www.mountainguide.is.
