Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

11.8.2008

Leiðangursstyrkur 66°Norður

leiðangursstyrkur.web66°Norður hefur í áraraðir verið leiðandi framleiðandi útivistarfatnaðar og í ljósi þess leita margir til fyrirtækisins að leiðangursstyrkjum.  66°Norður hefur styrkt marga góða leiðangra á síðustu árum og má þar t.d. nefna göngu Mörtu Guðmundsdóttur yfir Grænlandsjökul til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, göngu Leifs Arnars Svavarssonar Cho Oyu og göngu „Fimm tinda“ á hæsta fjall hvers landshluta til styrktar Sjónarhóli.

66°Norður hefur nú ákveðið að veita árlega tvo leiðangursstyrki til einstaklinga eða hópa að andvirði 500.000 kr. hvor.  Styrkirnir fela bæði í sér fatnað fyrir leiðangurinn og peningastyrk að upphæð allt að 200.000 kr.

Styrkirnir eru tvískiptir annars vegar er veittur styrkur fyrir leiðangra sem eru farnir til stuðnings góðs málefnis og vinna að því að kynna eða safna pening fyrir málefið.  Hins vegar veittur styrkur til krefjandi leiðangra á nýjar slóðir.

Umsóknarfrestur fyrir styrki til stuðnings góðs málefnis er
15. mars ár hvert og tilkynnt hver niðurstaða valnefndar er 1. apríl.  Umsóknarfrestur fyrir krefjandi leiðangra er 1. nóvember og tilkynnt verður 10. nóvember hvaða leiðangur hlýtur styrkinn.

Valnefnd skipuð fulltrúum frá Ísalp, Landsbjörgu, Ferðafélagi Íslands, Útivist, Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og Bandalagi íslenskra skáta ásamt fulltrúa frá 66°Norður mun fara yfir allar umsóknir og velja þá leiðangra sem þykja skara fram úr hverju sinni.

Að þessu sinni sytja í valnefndinni Freyr Ingi Björnsson frá ÍSALP, Jón Ingi Sigvaldason frá SL, Páll Guðmundsson frá FÍ,Skúli H. Skúlason frá FÚ, Margrét Tómasóttir frá BÍS, Einar Torfi Finnsson frá ÍFLM og Helga Viðarsdóttir frá 66°Norður.

Það er von 66°Norður að leiðangursstyrkirnir eiga eftir að koma að góðum notum og stuðli að áframhaldandi vexti útivistar á Íslandi.

Opna umsóknareyðublað


Veldu land : IS