Fréttir og viðburðir
8.7.2009
Þvert yfir Ísland
Í dag, miðvikudaginn 8. júlí, mun Jón Gunnar Benjamínsson, sem er lamaður neðan mittis, leggja upp í fimm daga langan og erfiðan leiðangur um hálendið á fjórhjóli.
Með leiðangrinum vill Jón Gunnar vekja athygli á því að fatlað fólk í hjólastólum hefur sama áhuga á ferðalögum og útvist og þeir sem ganga á tveimur jafnfljótum. Í ferðinni mun Jón Gunnar einnig kanna aðgengi fatlaðra að þeim skálum sem ferðafólki standa til boða á hálendinu.
Jón Gunnar hlaut leiðangursstyrk 66°Norður síðastliðið vor en fyrirtækið veitir árlega myndarlegan styrk til tveggja leiðangra sem farnir eru í nafni fyrirtækisins, annar til þess að vekja athygli á góðu málefni eða safna fjármunum fyrir það, en hinn á ótroðnar slóðir. Með þessu móti styðja við bakið á einstaklingum eða hópum sem vilja stunda útivist og láta um leið gott af sér leiða.
Í tengslum við leiðangur Jóns Gunnars verður safnað áheitum sem varið verður til að bæta aðgengi fatlaðra í Landmannalaugum. Framleiddir hafa verið bolir með merki leiðangursins og verða þeir til sölu í verslunum fyrirtækisins í Miðhrauni 11, Kringlunni og Smáralind. Bolirnir mun kosta 2000 kr og renna 1000 kr. af söluverði hvers bols til söfnunarinnar. Einnig getur almenningur styrkt verkefnið um þúsund krónur með því að hringja í söfnunarsímann, 901 5001.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
