Útivistarfatnaður og vinnufatnaður

Hágæða útivistarfatnaður og vinnufatnaður fyrir karlmenn, konur, börn og ungabörn er framleiddur af 66°Norður. Hér á þessari vefsíðu geta viðskiptavinir keypt hágæða fatnað fyrir útivist og vinnu.

Um Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður 

Árið 1926 hóf Sjóklæðagerðin hf - 66°Norður  framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum. Á síðari árum hefur bæst við fjölbreytt framleiðsla á útivistarfatnaði. 66°Norður er ávallt í góðu sambandi við endanlegan notanda. Í því sambandi má nefna náið samstarf 66°Norður við björgunarsveitir landsins. 66°Norður framleiðir útivistafatnað fyrir björgunarsveitir okkar. 66°Norður hefur sótt í sig veðrið, bæði innanlands sem utan, með aukinni fjölbreytni í fatnaði og framleiðslu fyrir alla aldurshópa með áherslu á hönnun og gæði.

close window
Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á leiðarkerfi búðar
66°Norður Ísland

Fréttir og viðburðir

3.7.2009

Shmuley rabbíni klæðist 66°Norður

Shmuley rabbíni klæðist 66°NorðurShmuley Boteach er bandarískur rabbíni sem hefur gert garðinn frægan vestanhafs meðal annars sem stjórnandi vinsælla sjónvarpsþátta og rithöfundur. Margir heimsþekktir einstaklingar eru og hafa verið vinir Shmuley og má þar helst nefna Michael Jackson og Oprah.

Um þessar mundir er Shmuley á Íslandi við upptökur á nýjustu þáttaröð sinni og var hann hér á landi þegar fréttir af andláti Michael Jackson bárust en hann var meðlimur í söfnuði Shmuley. Vegna andlátsins hefur Shmuley verið mikið í viðtölum við helstu fréttamiðla heims. Um helgina var hann til að mynda í viðtali við CNN þar sem hann klæddist Vík peysu frá 66°Norður svo það er greinilegt að hann kann bæði að meta íslenska náttúru og íslenska hönnun.

Shmuley er nýjasti meðlimurinn í sífellt stækkandi hópi frægra einstaklinga sem velja 66°Norður og kunna að meta stílhreinar línur hönnunarinnar og þau gæði sem fyrirtækið stendur fyrir. Aðrir sem nýverið hafa sést klæðast vörum frá 66°Norður eru Quentin Tarantino, Jake Gyllenhaal, Mel Gibson og Mary krónprinsessa Dana svo einhverjir séu nefndir.

Um 66°Norður

Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.

Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.

Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.


Veldu land : IS