Fréttir og viðburðir
15.6.2009
66°Norður verðlaunað fyrir framúrskarandi hönnun
Nýverið tilkynnti Polartec,® sem er leiðandi framleiðandi flísefnis í heiminum, hvaða fyrirtæki hlytu APEX verðlaunin í ár. Polartec® leggur mikið upp úr þróun nýjunga í efnum og í því skyni verðlaunar fyrirtækið á hverju ári þá aðila sem best ná að túlka þennan anda fyrirtækisins. Polartec® APEX verðlaunin eru veitt þeim hönnuðum og fyrirtækjum sem gera framúrskarandi vöru úr Polartec® efni. Flíkur og aukahlutir eru dæmdir eftir nýbreytni, hönnun, sniði og notkunarmöguleikum.
66°Norður er stolt að segja frá því að fyrirtækið vann APEX verðlaunin í ár. Margir stærstu framleiðendur útivistarfatnaðar nota Polartec® efni í sínar vörur og þess vegna er það stór áfangi fyrir 66°Norður að vinna þessi verðlaun, sérstaklega í ljósi þess að þetta er þriðja árið í röð sem 66°Norður hreppir þessi eftirsóttu verðlaun en Embla barnajakkinn var verðlaunaður í fyrra. Alls hefur 66°Norður unnið APEX verðlaunin níu sinnum.
Verðlaunajakkarnir í ár kallast Akrafjall og eru flottir og stílhreinir flísjakkar fyrir fullorðna. Jakkarnir eru unnir úr Polartec® PowerStrech® og Thermal Pro® Jaquard® sem er nýtt flísefni sem er blandað með 18% ull og heldur vel hita um leið og það andar vel og þornar fljótt.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.




