Fréttir og viðburðir
11.8.2009
Leiðangursstyrkur 66°Norður
Umsóknarfrestur vegna Leiðangursstyrks 66°Norður rennur út 15. september 2009
66°Norður hefur í áraraðir verið leiðandi framleiðandi útivistarfatnaðar og í ljósi þess leita margir til fyrirtækisins að leiðangursstyrkjum. 66°Norður hefur styrkt marga góða leiðangra á síðustu árum.
66°Norður veitir árlega tvo leiðangursstyrki að andvirði 500.000 kr hvor til einstaklinga eða hópa og fela styrkirnir bæði í sér fatnað fyrir leiðangurinn og peningastyrk að upphæð allt að 200.000 kr.
Í vor hlaut Jón Gunnar Benjamínsson styrk til þess að kanna aðgengi fatlaðra að hálendinu og safna pening til að bæta aðgengi fatlaðra að Landmannalaugum. Leiðangurinn gekk mjög vel og viljum við hjá 66°Norður óska Jóni Gunnari til hamingju með árangurinn.
Nú er komið að því að veita styrk til krefjandi leiðangra á nýjar slóðir en umsóknarfresturinn fyrir þennan styrk rennur út 15. September og verður tilkynnt hver hlýtur styrkinn 1. Október 2009.
Valnefnd skipuð fulltrúum frá Íslenska Alpaklúbbnum, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, Ferðafélagi Íslands, Ferðafélaginu Útivist, Bandalagi íslenskra skáta, Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum ásamt fulltrúa frá 66°Norður mun fara yfir allar umsóknir og velja þá leiðangra sem þykja skara fram úr hverju sinni.
Það er von 66°Norður að leiðangursstyrkirnir eigi eftir að koma að góðum notum og stuðli að áframhaldandi vexti útivistar á Íslandi.
Hægt er að sækja um Leiðangursstyrkinn með því að Opna umsóknareyðublað.
Nánari upplýsingar veitir Helga Viðarsdóttir, Markaðsstjóri 66°Norður. helga@66north.is eða 535-6600
