Fréttir og viðburðir
6.8.2009
Skólinn byrjar á ný
Nú styttist í það að skólarnir hefji göngu sína á ný og margir foreldrar farnir að huga að því að kaupa hlýjan fatnað fyrir börnin í vetur. 66°Norður hefur látið útbúa bækling með upplýsingum um klæðnað fyrir börn ásamt hluta af barnalínu fyrirtækisins, hvort heldur sem um er að ræða ungabörn, börn á leikskólaaldri eða börn sem byrjuð eru í grunnskóla.
66°Norður hefur í gegnum tíðina klætt íslensk börn fyrir skólann og er fyrirtækið stolt af því að framleiða hágæða barnafatnað úr bestu mögulegu efnunum. Það yrði lítið úr útiveru íslenskra barna stóran hluta ársins ef þau ættu ekki hlýjan fatnað sem þau geta klætt veturinn af sér.
Hægt er að nálgast bæklinginn í öllum verslunum 66°Norður, á heimasíðu fyrirtækisins auk þess sem honum verður dreift á sundstaði í Reykjavík, auk valinna íþróttamannvirkja.
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár.
Í dag starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu og rekur það 10 verslanir hér á landi undir vörumerkjum 66°Norður og Rammagerðarinnar.
Heimasíða fyrirtækisins er www.66north.is.
